Saturday, October 23, 2010

Hjólaglanninn ég.....

Ég er oft að velta því fyrir mér hversu mikið ég hef breyst á að búa hérna.....og pæli ég mikið í því þegar ég kem heim næsta sumar i heimsókn hvort ég eigi bara eftir að hegða mér eins og ég hegða mér hérna.....

Maður er nóttulega hinum meginn á hnettinum í borg þar sem að 22 miljónir manns búa og skal ég segja þér að það ganga ekki alveg sömu reglur um hegðun hérna eins og á Íslandi..

Til að mynda í samningaviðræðum þá talar fólk ekki saman heldur öskrar það á hvert annað...og ekkert bara svona létt að æsa sig heldur öskrar fólk það hátt að æðin í hálsinum á þeim byrjar að túttna öll út og það kemur hráka með öðru hverju orði hjá þeim....ég lenti í því um daginn að fara í svokallaðann silki-markað sem er markaður með allskyns fötum og vörum og gengur mikið út á það að prútta þarna inni....ég byrjaði eins og venjulega manneskja að prútta bara rólega en byrjar kínverjinn að öskra á mig og áður en ég veit af er ég bara líka byrjuð að öskra á móti....ekki leið á löngu fyrr en að ég fæ peysu í hausinn og var það ekki rosalega þægilegt þar sem að harði verðmiðinn á peysunni sem var með jarnkeðju slóst alltaf í andlitið á mér....en þar sem ég er í Kína þá kippti ég mig ekkert upp við það og hélt bara áfram að prútt-öskra og fá peysu með hörðum miða í fésið!! það var ekki fyrr en að ég var komin heim með fallegu peysuna mína ,sem ég fékk á skít og kanil. að það rann upp fyrir mér hvað þetta myndi aldrei gerast á Islandi...að ég myndi labba inni búð og spurja um verðið og afgreiðslustúlkan myndi bara byrja að öskra á mig og svo berja mig í hausinn með peysinni!!


Eins og ég hef örugglega áður sagt ykkur frá þá er rosa hjólamenning hérna í Kína bæði reiðhjól, rafmagnshjól og móturhjól en það er nú skemmtilegt að segja frá því að þó svo það sé algengara að kínverjar ferðist um á hjólum frekar en bílum og hafa gert lengi þá kunna þeir samt ekki að hjóla...ég verð alltaf jafn hissa þegar ég horfi á þau hjóla það er eins og það vanti bara allt jafnvægisskyn í þau...það líður ekki sá dagur að ég sjái ekki árekstra eða bara kínverja detta án þess að klessa á einn né neinn!!

......Mér var sagt frá því um daginn að strákur sem er með mér í skóla lenti í árekstri við kínverja og var hann (útlendingurinn) á rafmagnshjóli og kinverjinn á reiðhjóli.....þetta var nú ekki harkalegur árekstur en engu að síður þá dettur kínverjinn og fær litla skrámu á hendina....strákurinn steig af rafmagnshjóli sínu án þess að haggast og athugaði hvort að það væri nú ekki í lagi með þennann kínverja sem fekk litlu skrámuna á hendina....eftir að hafa talað við hann í smá stund kemur amma kínverjans sem var með honum í samfloti....amman byrjar að öskra og öskra á kínversku og var alveg snælduvitlaus....og enduðu þau á því að kalla á lögguna og var tekin skýrsla af þessu litla sem engu slysi sem átti sér stað.....ekki liðu margir dagar þangað til að útlenski strákurinn fær símtal og þurfti að mæta fyrir rétt og hafði amman þá kært hann og var að fara fram á fleiri milljónir íslenskra króna......strákurinn sem er námsmaður hérna og talar ekki reiðbrennandi kinversku vissi ekkert hvernig hann ætti að snúa sér í þessum máli þar sem hann hafði ekki einu sinni hugmynd um hvernig ætti að fá sér lögfræðing....eftir mikið vesen og umstang í þessu máli endaði hann með að þurfa að borga ömmunni og þessum sták einhvern pening fyrir þessa litlu skrámu sem kínverjinn fekk.....og eftir þessa sögu var mér sagt að ef ég klessi á kínverja að bara keyra i burtu og ekki einu sinni líta til baka eða segja afsakið heldur bruna áfram svo ég yrði ekki kærð fyrir eitthvað svona slys sem er báðum aðilum að kenna......

Og viti menn....eftir ár og tvo mánuði án þess að lenda í slysi...klessi ég ekki á kínverja eða meira svona jafnvægislausa gerpið klessir inní mig.....og mér bregður svona hrikalega og þessi blessaða saga poppar beint upp í hausinn á mér....ég stoppaði og hugsaði mig um i 2 sekúndur hvað ég ætti að gera...kínverjinn byrjar að öskra á mig "hvað í anskotanum væri að mér" þannig ég gerði bara eins og mér var ráðlagt.......öskraði á hann fyrirgefðu og keyrði í burtu....ég er alveg ennþá með blossandi sammara en það var alveg í lagi með kínverjann þetta var ekkert alvarlegt hann datt ekki einu sinni af hjólinu en samt ég sæi mig í anda gera þetta heima....heima hefði ég stoppað og tjekkað hvort að það væri ekki allt í order.... en þar sem að maður er útlendingur herna í kina þá er reynt allt til að tæma budduna manns!!

Ég og Anna erum búnar að eiga kort í ræktinni hérna í kína í svona hálft ár og er þetta alveg rosa þægilegt gym og svona nánast öll tæki tiltæk.....en það sem er rosalega fyndið er að ég og Anna erum svona fimm sinnum sterkari en allir kínverjarnir þarna inni og horfa þeir á okkur í hópum þegar við erum að lyfta því þeir ekki séns í okkur massana......Líka sem mér finnst rosalega merkilegt að kínverjar æfa ekkert í líkamsræktarfötum þeir eru bara i sínum gallabuxum og skyrtu og stundum meira segja yfirhöfninni...svo eru þeir þarna i ræktinni og lyfta sínum 5 kílóum og hlaupa smá en svitna samt sem áður...en að lokinni æfingu fara þeir svo bara aftur í sveittu gallabuxunum sínum og skyrtu beint i vinnuna eða skólann !!! þetta finnst mér rosa spes....ég tók lika alltaf eftir þessu í sumar a trakkinu í skólanum að kínverjarnir voru bara að spretthlaupa þarna hring eftir hring í gallabuxum og lakk skóm WHAT UP!!

Þetta er skóla-ár númer 2 hérna hjá okkur önnu minni án þess að við séum búnar að fara til íslands og líkar okkur ennþá rosa vel hérna....en þetta ár leggst mun betur i mig en það fyrra bæði er ég byrjuð að tala kínversku og svo þekki ég inna allt sem léttir mér lifið rosalega mikið....Einnig eru komnir nokkrir íslendingar hingað sem eru algerir snillingar og kviðir mig rosa mikið fyrir því þegar þau fara :(

Þetta er annað bloggið mitt i þessum mánuði og er ég hrikalega stolt af sjálfri mér...ég er að reyna að keppast við "two-little-elephant" og ég sé klárlega fram á vinninginn þennann mánuðinn !!

Over and out folks

5 comments:

  1. Hahaha :D Ég vil meira!!! Ekki skrifa bara eitt í mánuði, þetta er alltof fyndið :D

    Saknisakn :*
    Sunz

    ReplyDelete
  2. Haha...þetta er fáránlega fyndið!

    Já þér gæti orðið að ósk þinni ef að fellibylurinn Richard rustar pleisinu sem við erum á í augnablikinu og við verðum netlaus og komumst ekki neitt vegna veðurs. Annars þá þarftu að fara að herða þig enn meira...því það kemur nýtt blogg frá okkur á morgun eða hinn:)

    Knús frá okkur fí(f)lunum í Guatemala

    ReplyDelete
  3. hæ systur, gaman að þessari lesningu, hlakka til að lesa næstu, góða skemmtun og hafið það sem allra skemmtilegast, kær kveðja Bryndís

    ReplyDelete
  4. Skemmtileg færsla Dabba! Ég hef einmitt orðið vör við það hvað Kínverjarnir séu vanfærir og óöruggir á hjólum þrátt það hversu mikil hjólamenning sé hérna. Það verður gaman að geta fylgst áfram með ykkur eftir að við verðum farin. Takk fyrir ógeðslega skemmtilegt afmæliskvöld í gær!

    ReplyDelete