Thursday, October 14, 2010

Bakpokaferðalagið.....

jæja núna er kominn mánuður eða jafnvel meira síðan ég kom heim úr bakpokaferðalaginu mikla en langar mig að segja þér aðeins frá þessari mögnuðu lífsreynslu minni.....

Tæland, Cambódia, Vietnam með Önnu og Daníel coming up!!

Við byrjuðum ferðina okkar í Tælandi og eyddi ég og Anna mín þar 10 dögum áður en við hittum hann Daníel vin okkar í Bangkok........áður en ég fór í þetta ferðalag var ég mega búin að skoða allar upplýsingar hvernig og hvar og hvert og bara allt sem ég þarf að vita því ég dáðist svo að fólki sem fór í svona ferðalög og fannst það bara duglegasta fólk í heimi og hélt að þetta væri smá erfitt.....en svo þegar maður er kominn á staðinn þá er þetta hálfpartinn matað ofan i mann og bara alls ekkert erfitt og einhvern veginn gengur allt upp.... sem er ekkert nema bara gott... gerir manni lifið léttara í nýju landi þar sem maður talar ekki tungumálið....

Ferðalagið gós a litle something like this.....

Tæland: 10 dagar sóló eða ég og Anna....að bíða spenntar eftir Daníel nýja bestasta vini okkar í heimi sem við höfðum aldrei hitt....sáum allt bangkok....floating market...budda tempel i fleiri tölu...kynntumst heimamanni sem keyrði svona Tuk Tuk og fengum að sjá hvernig hann lifir og kynnast fjölskyldunni hans...fórum í magnaða 3 daga ferð....þar sem við gistum í húsi sem var úti á vatni....það stóð mikið uppúr allt ferðalagið...okkur var skutlað í mini rútu og á leiðinni fengum við að klappa ljóni, halda á sporðdreka, leika við apa, hoppa í foss og synda með fiskum sem nörtuðu í okkur, spila bongotrommur með heimamönnum, sitja á fíl í frumskógi og að lokum gista í þessum mögnuðu húsum sem við vorum bara skilin eftir á....okkur var skutlað þangað á bát og fengum við heimalagaðan mat frá yndislegri konu og svo gistum við sirka 20 manns þarna í húsum sem voru bundin hvort við annað.....þegar leið á kvöldið þá vorum við búinn með hálfann kælirinn af bjórnum og byrjuð að hoppa útí vatnið....svo var gítarspil og bongótrommur langt fram á kvöld og legið í hengirúmi á fleka .......eg fæ bara hlyju í hjartað að hugsa út i þetta.... eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert.....

Daníel mættur.....mikil spenna var yfir því að hitta nýja bestasta vin okkar í heimi þar sem að ég og anna vorum ekki búnar að hitta hann áður....mikil spenna í bland við stress má segja þvi jú við vorum nóttuleg að fara að ferðast saman í aðeins meira en mánuð... en sem betur fer var þetta bara fínasti kappi og ekkert lítið þægilegt að ferðast með honum.....En það má deila um hvort það var auðvelt að ferðast með henni önnu, en eins og alltaf er ég það awesome að það er alltaf gaman með mér hvort sem það er í ferðalagi eða ekki!!

Þegar Daníel greyið lendir í bangkok eftir 20 tíma flug bíða hans 17 tímar í rútu á næsta áfangastað KHO PHI PHI !!

En vááá og aftur vááá þessi eyja er ekkert smá falleg og rosa lítil....við áttum alveg heila 4 yndislega daga þar...köfuðum og sáum hákarla...úff smá stingur í hjartað þá en roooosalega gaman...skoðuðum eyjuna þar sem myndin "The Baech" var tekin upp...sáum monkey strönd....prufuðum wafe board og vááá rokkaði ég feitt á því !! fórum mikið í nudd hjá lady-boyum og allskonar dekur.....létum fiska éta á okkur tásurnar sem var smá spes en gaman.....

frá Kho Phi Phi lá leið okkar til Phuket og þar eyddum við bara 2 dögum en engu að síður falleg strönd og mikið líf á þeirri eyju.....Tæland er alveg magnað og ætla ég hiklaust þangað aftur yfir ævina :)

en vááá mikið mikið svindlað á manni þarna...en það er bara eitt af því sem maður er búinn að venjast smá á því að hafa búið í kína í heilt ár....en sjitt hvað það er samt pirrandi að vita að það sé verið að taka mann í rassgatið en geta ekkert gert í þvi !! serstaklega Tuk Tuk bílstjórarnir og taxarnir og svona fatabúðir sem láta sérsauma á sig!!

Cambodia: þegar við vorum búin að ferðast með rútu til landamæranna þá þurftum við að labba landamærin sem var alveg smá spes lífsreynsla leið svona smá eins og í bíómynd.....heill hópur að labba í beinni röð yfir landamærin...en eins og allt i þessum löndum þá gekk það útá peninga og vorum við aldeilis tekin i assið þar líka.... vorum látin bíða rosa lengi eftir rútu sem við vorum búin að borga fyrir og svo á endanum kom aldrei þessi rúta sem var allt í þeirra plotti og við látin borga taxa í bæinn....

Leiðin i bæinn var rosa falleg og landslagið ekkert sma magnað....þvílíkir akrar og ekkert svo mikið af húsum, 6 ára börn með beljur í bandi að labba.....karlmenn að vinna i risastórum ökrum sumir svo fullir að vatni að þeir þurftu nánast að synda....

Við fórum a nokkra staði í Cambodiu og skoðuðum við Killing Fields og S21 sem var alveg rosalegt maður var bara mikið eftir sig og fór halfgratandi þarna út...en fyrir þá sem ekki vita var Duch hæsti fangavörðurinn í S21 fangelsinu og aðalmaðurinn i genginu Khmer Rouge betur þekkt sem KR...... S21 var gagnfræðiskóli sem var breytt í fangelsi 1976. Það var alræmdasta fangelsið í KR tímanum. Karlar, konur og börn voru pyntuð og myrt fyrir litlar eða engar sektir. Þau sem voru myrt voru tekin á Killing Fields (Drápshaga), fólk var barið til dauða og börnum var lamið upp við tré.....og gat maður séð bæði hvar og hvernig þeir gerðu það og voru ennþa leifar eftir fólk þá bein og tennur....hrikalegt alveg því að þetta gerðist bara fyrir rúmlegum 30 árum síðan..og gat maður lesið þetta allt og farið í fangaklefana þar sem þeir pyntuðu fólkið og séð blóðslettur á veggjum....það hengu myndir útum allt ég átti alveg erfitt með að vera þarna inni...einnig gat maður lesið frásagnir fra fólki sem missti sína nánustu og sáu þá hreinlega vera tekin í burtu.....alveg hrikalega sorglegt sérstaklega þar sem þetta var að gerast 1979 og ekki það langt síðan að það var réttað fyrir þeim mönnum sem stóðu á bak við þetta fangelsi þar á meðal honum Duch......

En ásamt þessum sorglegu stöðum sáum við Angkor Wat sem var alveg rosalegt...vááá hvað það var fallegt...við löbbuðum þar í gegn með gæd og fræddumst smá um það......einnig skutum við úr byssum sem var hrikalega gaman...ég held að ég hafi sjaldan verið jafn töff eins og þá.....að skjóta úr riffli og hitta beint í mark.......Daníel var smá meira að skemmta sér það en við og skaut úr einhverjum 3 mismunandi byssum.....en ég og anna létum okkur nægja að skjóta bara úr riffli :D Einnig fórum við í krókudíla garð og gáfum þeim að borða sem var rosa gaman....og floating village þar sem fólk bjó a litlum batum í rosa skítugu vatni og átti nánast ekkert...fólk silgdi um með ávexti og drykki að selja...fólk bæði baðaði sig, tannbustaði og drakk uppúr þessu vatni...við hittum einn strák þar sem var með snák að betla pening....það var rosa mikið af betlurum þarna lítil börn í litlum bala með eina spítu til að ýta sér áfram...þetta var rosa magnað að sjá!!

Einnig keyptum við 2 hrísgrjóna poka minnir að þeir hafi verið 40 kíló hver og nammi handa munaðarlausum börnum sem við heimsottum .....þau voru þarna á munaðarleysingjahæli klukkutíma frá borginni og ekkert smá miklar dúllur og rosa þákklát fyrir það litla sem við gáfum þeim...að fara þangað var rosa gaman og fá smá innsýn í þeirra heim gerði manni ljóst fyrir hversu gott maður hefur það....

í þessum löndum er mikil fátækt og því mikið af fólki bæði að betla og selja á götunum allskonar dót..og mikið af heimilislausu fólki...og lenti ég einu sinni í þvi að lítill rosa sætur strákur sem var að selja bækur á götunni hvíslaði í eyrað á mér" I am going to Kill you", eftir að ég afþakkaði að kaupa af honum bók, sem var smá scary!!

Við vorum rosa heppin alltaf með hostel og kynntumst við alltaf frábæru fólki á hverjum stað....

Vietnam...úúújjjeeeeeeeeeee váá hvað ég elskaði það land...smá leiðinlegt hvað við höfðum lítinn tima á hverjum stað en við reyndum að nýta tímann okkar vel og notuðum þvi þann ferðamáta sem var alltaf á nóttinni...og ferðuðumst við oftar en ekki einu sinni í 17 tíma lest eða rútu að nóttu til...sem var rosa erfitt úúff

en ja Vietnam við byrjuðum á því fara rosa fínt hótel og tjilluðum þar með sundlaug og allskonar lúxus og var anna alveg i skyjunum þar..eða má segja með öðrum orðum hætti að grenja i nokkra daga ...eftir að hafa safnað upp orku fórum við í rosalegasta móturhjólaferðalag í heimi...vááá hvað það var gaman að keyra bara um með eitt kort og fara á næsta áfangastað......það var eitt það skemmtilegasta sem ég gerði í ferðinni ásamt húsinu á vatninu þarna í Tæ....bara með vindinn í andlitið og landslagið í æð og stoppa bara hvar sem er og villast....við keyrðum um 700 km og var fólk svona misglatt með þessa ferð....en þegar á endann var komið þá lentum við á einum fallegasta stað sem ég hef komið á "Sapa" en því miður vorum við með rosa lítinn tíma þegar á leiðarenda kom og var einhver miskilningur hjá sumum þannig við höfðum lítinn sem engann tíma til að sja þennann fallega stað..... sem ég er ennþá smá að grenja yfir...en ég fékk þó allaveganna að sja eina kirkju þarna í nokkra klukktima meðan ég beið eftir einu gerpi !! :)

Þegar við vorum buin að keyra hjólin alla leið til baka, sem BTW gekk mun betur en fyrri leiðin, áttum við einn dag eftir á þessum frábæra stað Hoi An sem við eyddum bara í að labba um og aftur miskjilast og villast smá...en eftir að við vorum öll buin að grenja sma yfir því þá lá leið okkar aftur til bangkok og þaðan til kina.......

Að ferðast svona með bakpoka og nokkrum aðilum er ekki alltaf auðvelt og hvað þá að þóknast þörfum allra...að mínu mati var þetta rosa gaman en með hana Önnu þá veit ég að hún ætlar ALDREI aftur í bakpokaferðalag... ég held að Daníel hafi skemmt sér bara ágætlega eða vona það að minnsta kosti.....

Daníel kom með okkur heim til kina og fengum við þann heiður að HLAUPA með honum upp vegginn og gera allskonar svona skemmtilegt túrista með honum........ég reyndi mitt allra besta að vera hinn besti gæd í heimi svo að hann myndi skemmta sér vel hérna í kína...en hann var misánægður með þá staði sem ég tók hann á....en það má segja að bátsferðin ógurlega sem ég tók hann á stóð sko með sanni uppúr!!

en þetta er nu bara svona gróf lýsing fyrir ykkur elsku lesendur....skolinn er byrjaður aftur ásamt vinnunni þannig ekkert nema fjör hérna á bæ :D

Lots of love D & A

1 comment: