Veturinn byrjar ekkert smá vel hérna hjá okkur systrum.....og verð ég nú að segja að hann leggst betur í mig heldur en fyrri veturinn...bæði þekkjum við meira til okkar hérna í Beijing og svo erum við í rosa góðum vinahópi núna sem gerir lifið mun skemmtilegra... einnig erum við búnar að læra inná það hvar er ódýrast að versla og hvernig maður kemst upp með að lifa á nánast engum pening....þannig að við erum mun ríkari núna heldur en i fyrra og ekki má gleyma að maður er byrjaður að tala tungumalið eins og 8 ára barn þannig að við getum gert okkur aðeins skiljanlegar sem er ekkert annað nema æði :D
Október var alveg yndislegur mánuður....ekki bara það að ég rúllaði skólanum upp og fekk 9,4 á miðannar prófunum og fekk verðlaun fyrir góðan árangur heldur er eg byrjuð að læra á gítar. Einn frábær strákur tók það verkefni að sér að kenna mér á gitar og gengur mér bara sæmilega verð eg að segja en ekki við öðru að búast þar sem ég er awesome í öllu sem ég tek mér fyrir hendur.....Eins og ég var búin að segja áður þá eru nokkrir íslendingar hérna í skiptinámi fra háskólanum heima og eyðum við miklum tima með þeim......við hittumstum oft og eldum saman eða bara til að spila og hafa gaman....ég og anna erum svo þakklátar fyrir að hafa kynnst þeim því þau eru alveg frábær og svo er ekki amalegt að geta tjáð sig á sínu tungumáli og bara talað við fólk sem hefur sama uppruna og maður sjálfur og skilur mann út og inn....eftir eitt og hálft ár í að vera miskilinn og tala barnamál er þetta rosa notaleg tilfinning.....
Ég átti afmæli þann 30 oktober og vil ég minna þá á sem ekki sendu mér pakka að það gefst ennþá tími til.....en váá hvað eg átti skemmtilegan dag með nýju bestustu vinum mínum í heimi....við byrjuðum á að hittast hérna heima hjá mér og fórum svo um 20 manns að borða á kóreiskum veitingarstað þar sem við sátum á gólfinu og borðuðum góðan mat og drukkum bjór.......og fekk ég allskyns gjafir og eina lifandi meira segja...Hann Kimtsjí litla sem var rosa sæt skjaldbaka, og jú ég segi "var" því greyið litli lest um daginn mikill sorgardagur a okkar heimili......en langar mig aðeins að segja ykkur frá ferðalagi míns og Kimtsjí þótt það var stutt þá áttum við ófáar góðar stundir saman.......ég man einn kaldann vetrardag þegar vindurinn barði á gluggann og vakti okkur snemma....við skelltum okkur saman í bað og lékum okkur þangað til að vatnið var orðið kalt og komnar miklar krumpur á puttana....eftir að við vorum komin með putta á við 90 ára gamlann mann fengum við okkur dýryndis hádegismat....ég eldaði fyrir Kimtsjí hráa orma og fekk mér ommilettu....við lékum okkur með allt nýja dótið hans og ég sýndi honum nýja breik múvið mitt ásamt því að ég spilaði nokkur lög a gítarinn minn.....þessar minningar deyja seint þó svo að hann Kimtsjí minn hafi dáið snemma...rest in peace my friend XOXO
Núna er Nóvember að klárast og er ennþá alveg semí heitt eða allaveganna ekki stingandi kuldi í fés og bein eins og síðasti vetur.....við Anna erum byrjaðar að vera duglegar aftur í ræktinni og mætti eiginlega segja að við séum bara tvær gangandi línur.......vinnan hjá önnu gengur rosa vel og þykir mér ekki ólíklegt ef hún yrði valin starfsmaður mánaðarins.... En þótt svo að veturinn byrjar alveg rosalega vel þá má víst ekki allt ganga eins og í sögu og skemmdi ég það í gær með þvi að fá mér saltstöng og brjóta eina frammtönn....og sit ég því hérna blístrandi annað hvert orð þar sem að tönnin datt heil úr..... alveg frábært....eg hef sjaldan verið jafn seiðandi og núna....!!
Sigrún og Lalli, tveir af islensku krökkunum sem eru hérna, eru að fara heim eftir 2 vikur og höfum við því ákveðið að skella okkur saman í ferðalag og erum við 6 að fara saman yfir helgi...ég hef ekkert ferðast um kína og hlakka því rosalega mikið til að fara...lika frábær hópur af fólki...... :D
ég er buin að vera i blogg keppni við Örnu og Bjarka og verð ég bara að jata mig sigraða þótt svo ég tapi yfirleitt aldrei í neinu en einhvern tímann er allt fyrst og finnst mér það bara frábært að ég tapi þá fyrir svona snilldar liði......en þar sem ég er bara hérna í hversdagleikanum í Beijing, skólanum, vinnu og heimalærdómi, þá hef ég ekki eins mikið að segja eins og ferðalangarnir tveir......eg vil samt þakka þeim fyrir frábæra keppni og skemmtilegt blogg :D
ég segi blístrandi með eina frammtönn "bless í bili"
XOXO
Haha þú ert yndisleg:)
ReplyDeleteJæja við eigum bara eftir ca. 3 blogg og svo er það búið hjá okkur.
En við höldum áfram að skemmta okkur yfir þessu æðislega bloggi:)
Þú ert best í heimi!! Sakna þín eeendalaust en bara yndislegt að heyra hversu gott þú hefur það! Luv á þig og þína einu framtönn!
ReplyDelete