Sunday, July 11, 2010
síðasliðnar vikur í hnotskurn!!
Lærði fyrir próf..fór í próf...fékk 8,5 á prófi...var rosa glöð..hringdi í mömmu sagði henni hvað ég fékk á prófinu...hún varð rosa glöð...fór og fagnaði...fékk mér ís....keypti mér flugmiða til Tælands...fekk fiðring í magann af spenning...lærði meira fyrir próf...kláraði öll prófin mína...keypti mér kort í ræktina...fór og púlaði í ræktinni...ældi næstum af ofreynslu...hugsaði til vinkonu minnar sem missti bróðir sinn....varð sorgmædd...fór að gráta....sendi henni meil og hætti að vera sorgmædd..fann kakkalakka skríða á mér...fríkaði út...fór á klósettið...sá 20 kakkalakka...fríkaði ennþá meira út...tók allt í gegn...fann fullt af kakkalakka eggjum....las um kakkalakka á netinu..fekk martröð um kakkalakka...drap alla kakkalakkana....fékk vini í heimsókn.....lék við þau....gerðum allskonar túrista...kvaddi vini mína... fór að gráta...fór í fallegann garð í beijing....var rosa spennt....fannst kínverjar rosa krúttlegir...lá í sólbaði í 40 stiga hita...fékk sólsting...fór heim í troðfullri sveittri lest...fannst kínverjar ekkert svo krúttlegir lengur....hitti tutorinn minn...talaði kínversku straight í 3 tíma...var rosa glöð...splæsti á hann mjólkurshake....sátum og tjilluðum með sitthvorn mjólurshakinn...talaði við ragnar á skype..fór í breik dans keppni við ragnar...rústaði ragnari...var andvaka að hugsa um ferðina sem ég er að fara í...ákvað að taka tvær æfingar svo ég myndi sofna snemma...var aftur andvaka...bloggaði....fór með önnu í vinnuna....tók upp á video litlu krúttlegu kínabörnin....fekk gleði í hjartað.....hlustaði á börnin syngja...táraðist....langaði rosa mikið í barn...var mikið að hugsa um barneignir....hlustaði á kínabarn grenja í 35 mínútur...hætti að hugsa um barneignir...fór út að hlaupa...fékk brúnku í framan....hitti vin minn....horfði á leikinn...púlaði í ræktinni....fékk nýjan vöðva...keypti mér þurrkaða banana....át þá með bestu lyst...fór á tónlistar show í kína...dansaði...kom heim...talaði við uppáhaldis á skype..fékk rosa gleði í hjartað....hitti gamlann mann....talaði við hann kínversku....fór út í sólbað...ákvað að rifja upp kínversku bækurnar....leiddist....fór aftur með önnu í vinnuna...söng með laginu þeirra....ældi á lagið eftir 2 tíma.....keypti mér crap á götunni....fékk mér að borða á götunni...fékk í magann af skítuga matnum...varð að drífa mig heim....tjillaði....fór aftur í ræktina...lék mér í ping pong með Wang.....vann Wang...hugsaði til vina minna....fekk sakn í hjartað...talaði við mömmu....var glöð.....settist niður og bloggaði um síðasliðnar vikur!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Elska þessa færslu! Elska! Takk líka fyrir mailinn. Elska hann líka. Svo elska ég ykkur líka. Ást út um allt.
ReplyDeleteþú ert svo mikill gullmoli....elska þig líka ***
ReplyDeletelélegasta afsökun í heimi til að fá comment
ReplyDeleteHaha!!! Þú ert svo fyndin!
ReplyDeleteElska þessa bloggfærslu...finnst nebbla ekki gaman að lesa en þetta var gaman :)
ReplyDelete