Sunday, July 11, 2010
síðasliðnar vikur í hnotskurn!!
Lærði fyrir próf..fór í próf...fékk 8,5 á prófi...var rosa glöð..hringdi í mömmu sagði henni hvað ég fékk á prófinu...hún varð rosa glöð...fór og fagnaði...fékk mér ís....keypti mér flugmiða til Tælands...fekk fiðring í magann af spenning...lærði meira fyrir próf...kláraði öll prófin mína...keypti mér kort í ræktina...fór og púlaði í ræktinni...ældi næstum af ofreynslu...hugsaði til vinkonu minnar sem missti bróðir sinn....varð sorgmædd...fór að gráta....sendi henni meil og hætti að vera sorgmædd..fann kakkalakka skríða á mér...fríkaði út...fór á klósettið...sá 20 kakkalakka...fríkaði ennþá meira út...tók allt í gegn...fann fullt af kakkalakka eggjum....las um kakkalakka á netinu..fekk martröð um kakkalakka...drap alla kakkalakkana....fékk vini í heimsókn.....lék við þau....gerðum allskonar túrista...kvaddi vini mína... fór að gráta...fór í fallegann garð í beijing....var rosa spennt....fannst kínverjar rosa krúttlegir...lá í sólbaði í 40 stiga hita...fékk sólsting...fór heim í troðfullri sveittri lest...fannst kínverjar ekkert svo krúttlegir lengur....hitti tutorinn minn...talaði kínversku straight í 3 tíma...var rosa glöð...splæsti á hann mjólkurshake....sátum og tjilluðum með sitthvorn mjólurshakinn...talaði við ragnar á skype..fór í breik dans keppni við ragnar...rústaði ragnari...var andvaka að hugsa um ferðina sem ég er að fara í...ákvað að taka tvær æfingar svo ég myndi sofna snemma...var aftur andvaka...bloggaði....fór með önnu í vinnuna....tók upp á video litlu krúttlegu kínabörnin....fekk gleði í hjartað.....hlustaði á börnin syngja...táraðist....langaði rosa mikið í barn...var mikið að hugsa um barneignir....hlustaði á kínabarn grenja í 35 mínútur...hætti að hugsa um barneignir...fór út að hlaupa...fékk brúnku í framan....hitti vin minn....horfði á leikinn...púlaði í ræktinni....fékk nýjan vöðva...keypti mér þurrkaða banana....át þá með bestu lyst...fór á tónlistar show í kína...dansaði...kom heim...talaði við uppáhaldis á skype..fékk rosa gleði í hjartað....hitti gamlann mann....talaði við hann kínversku....fór út í sólbað...ákvað að rifja upp kínversku bækurnar....leiddist....fór aftur með önnu í vinnuna...söng með laginu þeirra....ældi á lagið eftir 2 tíma.....keypti mér crap á götunni....fékk mér að borða á götunni...fékk í magann af skítuga matnum...varð að drífa mig heim....tjillaði....fór aftur í ræktina...lék mér í ping pong með Wang.....vann Wang...hugsaði til vina minna....fekk sakn í hjartað...talaði við mömmu....var glöð.....settist niður og bloggaði um síðasliðnar vikur!!
Thursday, July 1, 2010
Siðir og venjur Kínverja...
Siðir og venjur kínverja er eitthvað langt frá því sem ég ólst upp við og er vön að sjá....ég man svo vel eftir fyrstu veitingarstaðarheimsókn minni hérna í kína ég hélt að kjálkinn ætlaði að detta af mér útaf hneyksli.. ég sat í miklum spenning yfir að fá mína fyrstu kínversku máltíð hérna í Beijing þegar ég heyri mann ræskja sig svo mikið að hann ældi á gólfið og ekki það neitt hljóðlega heldur leyfði hann þessu öllu bara að gossa á gólfið með alvöru ælu látum.....en seinna meir komst ég að því að þetta er bara eðlilegt hérna í kína...það lýður ekki sá dagur að ég sé ekki fólk æla annað hvort á veitingarstað eða bara útá götu.
Það er ekki algeng sjón að sjá konur reykja hérna í kína en karlmennirnir reykja eins og strompar, þannig að þegar þeir sjá kvennmenn reykja missa þeir útúr sér augun af hneyksli sem mér finnst svo fyndið því um daginn var ég og anna að bíða eftir mat á veitingarstað og labbar líka þetta mikla kínverska krútt að okkur. Ég og Anna missum okkur alveg í að krúsí músíast við þetta litla kínabarn. Foreldrarnir voru svo stoltir og þeim fannst svo gaman að við vorum að veita barninu þeirra athygli að pabbanum fannst ekkert sniðugara en að stinga sígarettunni sinni upp í barnið og láta það reykja. Auðvitað fannst barninu þetta alveg ógeðslegt og byrjaði að byltast um en þá kom mamman og hló líka rosa mikið og þau stungu sígarettunni aftur uppí barnið....þetta gekk svona áfram í smá stund. Við urðum svo hneykslaðar að það tók okkur smá tíma að jafna okkur á þessu en svo eins leiðinlegt og það er þá er ég búin að sjá þetta nokkrum sinnum hérna í kína það er eins og þeim finnist þetta rosa sniðugt (þar að segja foreldrunum). En held ég samt að það sé meira fáfræði hjá þeim og þau vita hreinlega ekki hvað sígarettur eru óhollar.
En eins og það er fyndið að kínverjar telja það ekki kvennlegt að reykja, sem er samt gott því þá taka þær ekki upp þennan hræðilega vana, þá meiga þær hrækja eins og versti bóndi með munntópak. Fyrstu vikuna mína hérna brá mér í hvert skipti sem ég sá einhvern hrækja því þetta er engin smá slumma sem kemur út úr kínverjum. Þeir safna saman þessari hráku í góða stund áður en þeir leyfa henni að flakka á götuna. Og já ekki alltaf bara á götuna það er hrækt inná veitingarstöðum, verslunum, strætó og hvar eina bara þar sem þeim hentar........þótt ég sé búin að vera hérna núna í nánast ár bregður mér alltaf smá þegar ég sé rosa fína kona vel til hafða safna góðri slummu í nokkrar mínútur og hrækja henni svo á gólfið....Aftur á móti finnst önnu þetta bara æðislegt þar sem hún er vön að hrækja annaðlsagið þannig núna fær hún að gera það án þess að fá skrýtið augnaráð frá manneskjunni hliðana á sér.
Eins og ég er búin að segja nokkrum sinnum þá nota kínverjar holur í stað klósett, og anga því allir skólar af pissu fýlu sem er smá ógeðslegt. Á flest öllum stöðum vinnur ein manneskja við það að þrífa holurnar og stendur hún fyrir framan klósettið með moppu sem sem hún notar svo fyrir allar holurnar eftir hvert skipti. Þetta er svona tuskmoppa og ég vildi óska að ég gæti lýst lyktinni fyrir ykkur sem er inná þessum almennings klósettum. Þar sem ég er að vinna þarf ég alveg að halda í mér andanum þegar ég labba inní kennslustofuna útaf hlandlykt......og er þetta flest allstaðar svona hérna í beijing. Því eins og á börum og svona þá er þessi blessaða moppa bara skilin eftir í bala fyrir framan holurnar og MY Ó MY fýlan!!!
En svo ég tali nú ekki bara um neikvæðu siði og venjur kínverja þá finnst mér eitt svo æðislegt. Þau hjóla og labba allt sem þau fara ég verð alltaf jafn undrandi þegar ég sé 97 ára gamlann afa hljóla með innkaupa vörurnar sínar. Mér þætti æðislegt ef ég myndi sjá þetta heima á íslandi ömmu og afa hoppa uppá hjólin til að ná í mjólkina út í búð.
Kínverjar eru rosa mikið fjölskyldufólk og hreinlega fæ ég bara hlýju í hjartað því þau eru svo góð við hvort annað. Í complexinu sem ég og Anna búum í þá er garðurinn alltaf fullur af ömmum og öfum að leika við barnabörnin en þá tíðkast það að amman og afinn eru með barnabarnið á daginn meðan foreldrarnir vinna. Og tel ég þau rosa dugleg að vera að hlaupa á eftir þeim allann liðlangann daginn hérna í garðinum. Ég og anna sitjum oft útí garði að reyna að leika við börnin en þau eru svo hrædd við okkur hvítu risana að þau fara alltaf að gráta þegar þau sjá okkur og það ekki neitt nokkur tár heldur alvöru grenj.
Í kína er ekkert fyrirtæki sem heitir Sorpa heldur eru það bara einstaklingar sem vinna sjálfstætt við að týna ruslið og tæma ruslatunnurnar. Og nei nei það er ekki til ruslabíll sem er lokaður og þjappar ruslinu vel saman heldur hjóla þau á svona rafmagnshjólum með kerru í eftirdragi. Þau safna rusli allann daginn og hittast svo nokkur á góðum stað til að flokka ruslið. Svo raða þau þessu rosa vel á kerrurnar og binda þetta vel niður. Það er rosa mikið af fólki sem vinnur við að safna rusli og eru þau rosa skítug sjálf og fýlan er alveg hrikaleg......fýlan þar sem þau stoppa og flokka ruslið er alveg viðbjóður og núna þar sem það er nánast alltaf 40 stiga hiti þá magnast hún hrikalega og angar útum allt...frekar mikill viðbjóður. En samt er rosa gaman að sjá hvað þeim tekst að troða miklu rusli og dóti á eina kerru og hjóla með þetta útum allann bæ án þess að þetta detti af.
Matur í poka......það er eitt það fydnasta sem ég sé. Allt sem maður kaupir sér fær maður í poka og duttu af mér allar dauðar lýs um daginn þegar ég var að kaupa súpu handa mér og önnu og bað um að fá það matinn út......kemur ekki konan með einn stóran poka með súpunni í...ekkert neitt verið að splæsa í box heldur er bara öllu skellt í poka.......allur matur sem maður kaupir sér á götum er skellt í poka.....fyrst fannst mér þetta rosa fyndið en eins og allt þá venst þetta og finnst mér rosa eðlilegt að fá súpu í poka í dag......Þeir setja einnig jógúrt i poka og drekk ég jógúrt úr poka á hverjum degi :)
Það er rosa mikið af svona complexum eins og ég og Anna búum í.....þetta eru svona blokkir sem mynda kassa og er rosa fínn garður í miðjunni. Það er alltaf rosa mikið líf í þessum complexum og eru allir rosa góðir vinir......á daginn eins og ég sagði áðan leika sér allir saman í garðinum og svo á kvöldin er spiluð tónlist og allir dansa sem mér finnst alveg rosalega krúttlegt...
hmmmm eins og er þá dettur mér ekkert fleira að segja ykkur.....núna er að verða komið ár síðan ég og Anna fluttum hingað út og okkur líður roooosa vel.
Ég er búin að breyta náminu mínu og ætla ég því að vera hérna í 4 ár í viðbót og er ég mikið mikið glöð yfir þessari ákvörðun minni :)
Ég las um daginn í einu bloggi að fólkið ætlaði ekki að setja inn aðra færslu fyrr en 20 manns væru búin að kommenta.....mér fannst þetta alveg rosa sniðugt og ætlaði ég að reyna þetta en þar sem að ég á bara 5 readers fan þá þori ég varla að segja þetta :D
over and out Dabba og Anna hráka

Subscribe to:
Posts (Atom)