Wednesday, April 14, 2010

Góa, Mumbai, Shanghai, Beijing......

Eftir 15 tíma svefn Bus ferð vorum við staddar í Góa og leið og við stigum út úr rútunni var rosa mikið ys og þys...fólk hlaupandi að okkur til að selja okkur allskonar....öskrandi kallar að reyna að fá okkur í sinn taxa eða á sitt hostel endalaust af betlurum að betla pening.....en sem betur fer vissum við hvaða hostel við ætluðum á og stukkum því bara í næsta "tuk tuk" sem er svona lítill opinn taxi...... ferðin að hostelinu var eins og klippt útur bíómynd.....þegar við vorum komnar úr miðbænum þá var rosa ró og næði....var smá eins og við vorum komnar upp í sveit...rosa fallegt umhverfi og gömul hús sem voru hálf kláruð með miklu lífið í görðunum gamlir kallar að tala saman konur að þvo þvottinn úti og krakkar á bossunum að leika sér....

Göturnar voru frekar þröngar og litlar og mikill gróður í kringum þær.....konur labbandi um með ávaxtakörfur á hausnum í litríkum fötum og heilögu kýrnar á hverju strái...... við vorum allveg dolfallnar á leiðinni á hostelið.......

Hostelið sem við lentum á var rosa gott það var beint fyrir ofan ströndina og höfðum við aðgang að sundlaug sem var skammt frá hótelinu okkar...... Ég og Anna ákváðum að fara beint á ströndina og sleikja sólina aðeins...þetta var engu líkt ég hef farið á marga sólarstaði en þetta var eitthvað langt frá því sem ég hef nokkurn tímann séð....það er ekki kominn svona túrista blær yfir þennann stað sem mér fannst mega nice..... Þegar við stigum fyrstu skrefin á ströndina komu hlaupandi að okkur fullt af litlum börnum og spurðu hvað við hétum og hvaðan við vorum og báðu okkur að koma að skoða í básana hjá sér sem lágu meðfram allri ströndinni....okkur fannst þetta rosa krúttlegt allt saman enda nýkomnar og við sögðumst koma á eftir.....en svo leið ekki á löngu að við föttuðum að þetta var þeirra söluaðferð....þannig áður en við vissum þá vorum við með heila lest af börnum á eftir okkur því við vorum búnar að lofa okkur í svo marga bása.... á endanum náðum við loksins að leggjast niður og fá smá sól á kroppinn....en þá komu ungar stelpur í röðum sem héldu á körfum með hausnum og voru þær körfur fullar af skartgripum og áður en ég gat sagt "nei takk" þá var ég þakin í skartgripum hún raðaði þeim svo vel á allann líkamann minn að það tók mig hálftíma að taka þá alla af mér.....

Við leigðum okkur skellihnöðru á fyrsta degi og váááá núna langar mig að selja litla fallega bleika rafmagnshjólið mitt og kaupa mér alvöru stóra skellihnöðru....en það kemur bara seinna :D En það var rosa þægilegt að vera á hjóli þarna því við náðum að afreka rosa mikið á þeim tíma sem við vorum þarna....við keyrðum bara útum allt og lentum á allskonar stöðum og hver einn var rosa fallegur..... Það er rosa mikið af bakpokaferðalöngum þarna í Góa sem kemur upp skemmtilegri stemmningu á staðnum.....flest allir eru bara að ferðast einir og því kynnist maður rosa mikið af fólki og við vorum alltaf með nýjum og nýjum hóp út að borða eða gera eitthvað túrista......Við kynntumst rosa góðu´fólki í Mumbai og hittum þau svo öll aftur þarna í Góa sem var rosa gaman.....

Við vorum búnar að vera mega heppnar með herbergið okkar á hostelinu þangað til að Anna greyið var orðin doppótt um allann líkama og þá föttuðum við að það var Bed-bugs í rúminu....við fengum að skipta um herbergi en þá tók við eitt stykki tarentúlla og eðla sem voru að skríða upp veginn hjá okkur....en við drápum það bara eins og ekkert væri...EINMITT ég hljóp út öskrandi á lobby gaurinn með Anna var öskrandi inní herbergi að sprauta hárspreyi á greyið dýrin....en fyrir utan öll þessi heimilsdýr og rauðu maurana sem voru á veggjunum þá vorum við mega ánægðar með hostelið okkar :D

Ferðafelagarnir okkar ákváðu að fara lengra suður en fannst okkur þetta svo mikið paradís og tímdum ekki allveg að vera eyða 20 tímum í rútu á næsta áfangastað og svo til baka þar sem við höfðum ekki það langan tíma þarna......þannig við spókuðum okkur bara á ströndinni og fórum á nýja staði á kvöldin....rosa skemmtilegt hvernig matsölu-og skemmtistaðirnir eru í Góa þar sem þetta er ekki orðið svona túrista staður eins og "Benidorm" og þeir staðir....það eru flest allir staðirnir fyrir ofan ströndina og þar getur maður bara legið og borðað matinn sinn í svona hálfgerðum legustólum eða hengirúmi.....það er frekar mikil hippastemmning þarna og er ekkert rosa mikið drukkuð eða allaveganna ekki á sama mælikvarða og íslendingar drekka....það er meira bara varðeldur á ströndinni og Bob Marley á phoninum sem var gaman að upplifa :D

Eins og ég sagði í síðasta bloggi þá er ég ekki neitt vanur bakpokaferðalangur og hef aldrei á komið á svona híppanýlendu áður....þannig að mér var allveg smá brugðið að sjá alla þessa hippa samankomna þarna á ströndinni....en það var eitthvað sem vandist fljótt og var þetta allveg rosa skemmtilegt fólk smá "flippað" en það var bara gaman....Við áttum allveg bátt með okkur stundum að detta ekki í gólfið úr hlátri þegar þau voru að dansa og svifu þarna um gólfið í sínum heimi.......

Ég myndi hiklaust mæla með Indlandi fyrir alla til upplifa menningu þar sem heimilislausir labba um berfættir í engum buxum og millistéttarfólkið labbar um með gullúr og Gsm síma.....ég var að lesa blogg frá íslandi þar sem að fólk var að kvarta yfir kreppu, fátækt og eiga ekki pening fyrir hinu og þessu.....pppfffff... eftir að hafa komið til Indlands þá fattaði ég hvað Íslendingar hefðu það gott...það eru nánast allir með þak yfir höfuðið, með heitt vatn til að sturta fimm manna fjölskyldu á hverjum degi, föt og skó klæðnað og fá flest allir að lúxus máltíðir á hverjum degi........maður á ekki skilið að kvarta!!

Þegar við vorum á leiðinni til Mumbai aftur heyrðum við af hryðjuverkum sem voru rétt hjá sem við vorum að fara...það var frekar scary að vera á sama stað...en harðjaxlarnir við létum það ekki á okkur fá......Eftir þriggja vikna ferðalag okkar í Indlandi lá leið okkar aftur til Shanghai og þaðan til Beijing í hversdagslífið vinnuna og skólann.......

LOVE D & A

3 comments:

  1. vá hvað þið eruð að kynnast mörgu ,njótið þess í botn kær kveðja þórunn emelie

    ReplyDelete
  2. Takk kærlega fyrir það þetta er allveg rosalegt ævintýri :D

    ReplyDelete
  3. Meira blogg meira blogg!!!!

    luv xoxo Dagný

    ReplyDelete