Saturday, August 15, 2009

London Baby....

Eftir að hafa grenjað alla leiðinni uppá Keflavíkurflugvöll var ferðinni heitið til London, við pöntuðum ódýrasta hótelið sem við fundum á netinu og voru væntingarnar ekki miklar. En svo þegar að taxinn var kominn á leiðarenda setti hann okkur út hjá geggjuðu hóteli með mega flottum veitingarstað og allskonar skemmtilegheitum.......

Við erum á Hóteli rétt hjá flugvellinum og tekur það svona klukkara með lest og 30 mín. í rútu að komast á Oxford street, en auðvitað fórum við þangað fyrsta daginn og vááá hvað það er mikið af fólk og MIKIÐ AF FLOTTUM BÚÐUM...en við erum bara búnar að sannfæra okkur um að þessi fólksfjöldi sé undirbúningur fyrir það sem við eigum eftir að upplifa í Kína...

Við erum ekki vanar svona miklu fólki og vorum frekar motional fyrsta daginn okkar þannig að það leið næstum yfir Önnu og við skiptumst á að tárast útaf smáhlutum..... En þá fengum við okkur bara bjór og þá lagaðist þetta allt saman :D

Við tókum taxa á svona hjóli og fórum á mega flottan Marakóskan stað og borðuðum framandi mat og sátum á golfinu á svona pullum....og kynntumst frábæru fólki sem settist hliðana á okkur og sagði "FOKK" í öðru hverju orði.....

Við fljúgum á morgun til Kína og verðum lentar á mánó í Beijing, við erum rosa spenntar og smá hvíðnar en thank God að Davíð ætlar að sækja okkur á flugvöllinn.....

Anna hlunkur kom hérna inn í herbergið og var ekki sátt við að fá ekki að vera með í þessari bloggfærslu....hún keypti allt sem að sjálfsalinn hafði upp á að bjóða þannig núna erum við að fara að borða eins og sv** og horfa á 120 stöðvar sem við erum með hérna á hótelherberginu..

þangað til næst biðjum við að heilsa London Style LUV frá okkur

4 comments:

  1. Ha ha þið eruð svo fyndnar stelpur! Hlakka til að lesa fyrstu færsluna frá Kína...

    ReplyDelete
  2. En ÆÐISLEGT ég verð bara emotional að lesa þessa færslu frá ykkur. Rifjast upp fyrir mér tilfinningarnar frá minni ferð!

    Þið eigið svoo innilega eftir að fíla ykkur í kínalandi. EF að ykkur gæti hugsanlega leiðst þá eruði svo ruglaðar / frábærar að þið búið ykkur til ykkar heim ;)

    Er Davíð Rafn ennþá þarna úti ???

    Hafið það gott elsku rúsínubollurnar mínar..

    p.s Dagbjört þú ert greinilega hæfileikaríkur penni.. xoxoxoxo

    ReplyDelete
  3. Takk sykurbolla.... já hann er þarna ennþá og við erum að fara leigja saman þannig að hann sýnir okkur kína fyrstu dagana :D

    ReplyDelete
  4. Góda ferd og gangi ykkur súper vel -og umfram allt skemmtid ykkur konunglega!!
    Bid kaerlega ad heilsa Davíd;)
    knús á ykkur fallegu systur!
    kvedja,
    Eva Dögg

    ReplyDelete