Þá er að koma að því, en áður en ég kem að endalokum ætla ég að byrja
söguna frá byrjun.
Við Anna höfum gert margt saman í gegnum tíðina og varið nánast öllum okkar
árum saman.Það má segja að þetta hafi allt saman byrjað þann 30. Október
1983, kl 16.00. Þá breyttist líf Önnu Mæju til hið betra. Það tók þetta
litla kraftaverk ekki langan tíma að ýta sér í heiminn og ef ég myndi setja
mig upp í myndlíkingu má segja að ég hafi verið eins og góð grilllykt sem
leikur við nasirnar á manni á heitum sumardegi.
En ef ég hraðspóla aðeins áfram og kem að heitum sumardegi árið 1987 þegar
ég litla kraftaverkið og Anna Mæja mín vorum að labba í sjoppuna með
laugardags 100 kallinn okkar. Það tók okkur þá aðeins lengri tíma að labba
þennan stutta spöl þar sem ég var með spelkur frá ökla og uppað hnjám útaf
mínum skökku löppum. En Anna Mæja mín lét það nú ekki á sig fá og hélt
ótrauð í hendina á mér með fulla þolinmæði. Þegar að sjoppunni var komið
hvíslaði ég í eyrað á Önnu minni hvað ég vildi fá og sagði hún sjoppukonunni
það með ákveðinni röddu. Þar sem ég þorði ekki að tala við neinn annann en hana........
Og enn ýti ég á Fast Forward takkann.....
....Og kem að árinu 1989 það var kaldur vetradagur og kom ég grátandi heim úr skólanum eftir að mér var strítt því ég var með flöskubotna sem gleraugu og lepp yfir öðru auga. En hugsaði Anna mín sig nú ekki tvisvar um heldur rauk út og lumbraði á öllum strákunum sem voru að stríða mér. Þennan sama dag áttum við góða dag, Anna gerði heitt kakó fyrir okkur og leyfði mér að velja alla þá leiki sem ég vildi fara í...alltaf setti hún þarfir mínar fram fyrir sínar og gerir það enn þann dag í dag þessi elska.
Fast Forward.....
Það var snemma morguns 1990 og Desember mánuður gengin í garð, Þetta var á þeim tíma sem við vorum saman í herbergi. Anna vakti mig og sagði mér að kíkja í skóinn sinn. Og var kartafla í skónum hennar en aftur á móti var mandarína og happaþrenna í mínum. Anna tók kartöfluna og tók í öxlina á mér og hvíslaði í eyrað á mér " ef þú segir mömmu þá DREP ÉG ÞIG" og kastaði svo kartöflunni útum gluggann. Svo kemur mamma inn stuttu seinna og spyr hvað jólasveinninn hafi gefið okkur í skóinn...Anna leit á mig með reiðum augum í þeirri merkingu að ég mætti ekki tala, og svaraði því fyrir okkur báðar og sagði að jólasveinninn hafi gefið okkur það sama í skóinn mandarínu og happaþrennur....og auðvitað þorði ég ekki að segja neitt þar sem Anna horfði á mig með þessum drápsaugum....
Fast FW.......
Það var árið 1993 og sólin skein sem aldrei áður, við systur vorum komnar í Kvennahlaupið niðrí Laugardal. Þegar hlaupið var í þann mund að byrja kallar dómarinn yfir hópinn í kallkerfinu " þú þarna með derhúfuna þetta er kvennahlaup og því mega einungis konur taka þátt" ég litla rakaða feimna stelpan sagði " ég er stelpa" en hann heyrði náttúrulega ekkert í mér og hélt áfram að öskra og benda þessum drengi að koma sér í burtu.....En þá kemur Anna mér til bjargar og öskrar á móti "þetta er ekkert strákur þetta er litla systir mín hún Dabba láttu hana nú í friði".....BÚÚÚMMMM var skotið úr byssunni og hlupum við að stað.........
Fast FW...
Ég held það hafi verið í kringum 2000 það var rétt eftir að ég hafði fengið mér minn fyrsta sopa af áfengi, jú það passar árið 2000 þegar maður var rétt stiginn yfir 17 ára aldurinn......þá hafði ég fengið mér einn sopa af bjór og fattað það þá og þegar að mér líkaði hann ekki neitt og hef síðan þá ekki smakkað það meir.....en nóg um það !! Ég var á leiðinni heim úr partýi kl. 23.30. auðvitað!! en það er ekki frásögu færandi nema hvað ég labba inní dimmt húsasund og kemur þessi maður að mér og segir mér að taka af mér alla skartgripi og láta hann fá þá ásamt veski mínu, ég alveg titrandi úr skelfing með hjartað í buxunum geri eins og maður segir þegar ég heyri öskur að handan....var þetta ekki hún Anna Mæja syssa hún kemur hlaupandi og hoppar niður af húsþaki eins og kattarkonan í Batman og lætur óþverrann hafa það......lúskrar vel á honum og nær dótinu mínu til baka og hringir svo á lögguna.......trú story!!
Fast FW......
Núna er komið að árinu 2009 ég og Big S. aka Anna Syssa aka My cheese on the burger aka Anna María sitjum í rúminu okkar í Fellsmúlanum ENNÞÁ saman í herbergi fullar af spenning og eftirvæntingu við að flytja út til Kína .....Við vorum að tala um alla þá spennandi hluti sem við vorum að fara lenda í útí Kína þegar það líður yfir mig. En hjúúkk að Anna the S of thunder var þarna hliðana á mér og skellti mér uppá öxlina og hljóp með mig niðrá slysó til að bjarga litlu systir sinni þar sem við áttum flug morguninn eftir.....Eftir þetta atvik hugsaði ég með mér .." hvar væri ég án hennar Önnu minnar " ..... again trú story!!
Loka kaflinn.....
Núna er komið að því endanum á sögunni okkar, endanum á ferðalaginu, endanum á að deila sama herbergi, endanum á að leigja saman, endanum á að valhoppa með bros á vör ......Já hún Anna er að flytja heim til Íslands eftir 70 daga og verð ég litla kraftaverkið ein eftir í Kína. Við erum að fara að klippa á naflastrenginn mun það verða sársaukafullt en samt sem áður gleði og hamingja....Við erum búnar að vera saman núna allt okkar líf, ekki bara að valhoppa með bros á vör, heldur saman í herbergi, deila öllum okkar glöðu, erfiðu og sorglegu stundum saman.....En tel ég það bara vera gott mál þar sem ég er komin með ógeð af þessari píju..... nei smá grín. En hlakka ég samt sem áður til að fá að upplifa lífið án þess að Anna Súperman standi mér við hlið.
Pís out