Saturday, March 5, 2011

Fröken VÖN!

Ég man eftir fyrstu dögunum mínum hérna í kína þegar ég kynntist ákveðnum týpum. Ég kallaði þau "Vana" fólkið, allt sem þau gerðu var svo vant. Þegar ég kom til Kína fyrir rúmum 2 árum síðan þá hafði ég aldrei komið til Asíu og vissi nánast ekki neitt um Asíu og þar með Kína. Allt í mínum augum og eyrum var spennandi, hvernig þau töluðu, hvernig þau borðuðu og bara hvernig þau gerðu allt. Bara það eitt að sjá kínverja fannst mér spennandi. Þá kynntist ég "Vana" fólkinu sem gerði lítið úr öllu og hræktu á götunum meðan þau sögðu " ´Ég hef prófað þetta, eða já ég hef farið þangað oft, eða já ég kann allt hérna" En núna finn ég sjálfa mig vera að drita mig niður af "Vana-leika" með hríðskotabyssu BÚÚMM....

Ég fór á veitingarstað og mér fannst rosa spennandi að panta mér mat af matseðlinum og þá kom herra Vanur og leit ekki einu sinni á matseðilinn og pantaði fyrir allann hópinn á kínversku þá ældi ég næstum á hann því hann var svo vanur, en svo um daginn skaut ég mig aldeilis í löppina þar sem ég fór út að borða með fólki sem var ný komið hingað. Ég tók upp matseðilinn pantaði á línuna með lokuð augun og taldi upp réttina afturábak.... BÚÚMM !!

Eins og fólkið í ræktinni sem var svo vant að þau komu inn í sínum latex stuttbuxum og gáfu öllum vöðvatröllunum high five og öskruðu kínversku þvert yfir salinn. Í fyrstu skildi ég nóttulega ekkert hvað þetta vana fólk var að segja.. enn aftur finn ég að ég er búin að skjóta mig í löppina og góma sjálfa mig við að vera VÖN .......hlaupa inní ræktina í vel þröngum latex stuttbuxum með svitaband um hausinn og á meðan ég öskra þvert yfir salinn "Yang hvað ertu að taka í bekk í dag" slæ ég fast í rassinn á Yong sem er að gera æfingar hliðana á mér!! BÚÚMM BÚÚMM !!

Ég man eftir því þegar ég fór fyrst í svokallaðann silki markaðinn og var þar í eftirdragi með vana fólkinu. Ég var svo spennt að mig langaði bara að kaupa allt og fannst ekkert skrýtið að borga 5000 kr. fyrir Converse skó, en fröken Vön byrjaði að öskra á búðarkonuna og tók mig svo og við löbbuðum í burtu og létum svo kínverjann öskra á eftir okkur þangað til að við fengum skóna á 800 kr. .......já enn og aftur drita ég mig niður með hríðskota byssunni með því að taka nýju skólafélagana mína þangað, þegar ég kom að inngangnum kallaði ég yfir hópinn þið fylgjið mér bara og veifaði svo hendinni yfir hópinn í þeirri meiningu að þau ættu að labba inn. Um leið og einhver ætlaði að kaupa sér eitthvað var ég byrjuð að öskra á kínversku búðakonuna og áður en ég vissi af var ég búinn að draga 40 manna hópinn í burtu í þeirri von að kínverjinn myndi öskra á eftir okkur og gefa okkur hlutinn á því verði sem ég vildi.... BÚÚMM BÚÚMM BÚÚMM!!

Fyrst þegar ég fór út á skemmtanalífið vissi ég ekkert hvar var best að djamma og hlustaði náttúrulega bara á vanafólkið sem vissi allt svo mikið best. Þau tóku mig á fullt af stöðum hérna í Beijing bæði góða og sumir mjög slæmir. Ég elti þau bara og hlustaði á þau segja taxanum hvert ferðinni var heitið án þess að vita hvar ég var stödd eða á hvaða skemmtistað ég var komin...... en svo dreg ég upp byssuna góðu og tek nýja herbergisfélagann minn á djammið, ég spyr hana hvert hún vill fara en hún svaraði "ég veit ekkert hvað er skemmtilegt hérna í grendinni"..... ég blikka hana með vinstra auganu og segi " ekki málið roommy, ég tek þig á bestu staði í beijing og áður en ég veit ef er ég búin að blístra á taxa og hendi henni í aftur sætið " BÚÚMM BÚÚMM BÚÚMM BÚÚMM!!!

Mig langar svo ekki að vera fröken vön en ég er orðin götótt af hríðskotunum á sjálfa mig!! En ætla að fara að passa mig áður en að einhvern hreinlega ælir á minn "Vana-leika"!!

Kveðja Fröken V.