Eftir Bloggið mitt þar sem ég var að segja ykkur frá venjum og siðum kínverja þá poppar alltaf eitthvað nýtt og nýtt í hugann minn það sem ég hefði átt að skrifa og langar smá að segja ykkur......
Kínverja strákar eru með rosa langar neglur og er það þá yfirleitt litla putta nöglinn sem þeir safna....en það safna líka rosa margir öllum nöglunum..og sé ég það oft í lestinni að strákarnir eru að snyrta á sér 5 cm langar neglurnar.....smá "huggó" stundum þegar maður er að kaupa sér mat á götunum og þeir eru með rosa langar skítugar neglur þá liggur við að maður hættir við að fá sér að borða...
Einnig fæðingarblettirnir ég man ekki hvort ég var búin að minnast á þá en ég ætla að gera það þá bara aftur....þeir eru gott efni í umræðu....flestir gaurar eru með nokkra vel útstandandi fæðingarbletti í fésinu og þá er ég að tala um VEL útstandandi ...en ekki nóg með það að þeir standi meter útúr andlitinu á þeim þá kemur þetta hrikalega fax útur þeim sem þeir svo strjúka fram og til baka með 5 cm löngu nöglunum sínum....SMEKKLEGT!!
Þar sem ég var búin að skrifa þessa færslu en hafði ekki sett hana inn þá ætla ég að henda henni inn og skrifa svo seinna um ferðalagið mitt sem ég var í hér kemur allaveganna byrjunin :D
Við systur erum á leiðinni í bakpokaferðalag til Tælands, Cambodiu og Vietnam og erum við ekkert neitt lítið spenntar....Við erum búnar að vera í fríi núna í Beijing í smá tíma og erum við búnar að vera rosa duglegar að skoða beijing en þó aðalega að vera heilsusamlegar og vera í ræktinni.......En fyrsta stopp okkar systra er Tæland og á leiðinni á flugvöllinn byrjaði að rigna ekki furða því eins og allir þá kveður Beijing okkur með tárum....
Við erum bæði rosa spenntar að taka smá frí frá Beijing og fara til "útlanda" þar sem við erum báðar búnar að upplifa love - hate relationship við Beijing síðastliðna daga einnig spenntar yfir því að hitta vin okkar Daníel sem er að fara ferðast með okkur......
En ef ég segi ykkur aðeins frá Love-hate sambandinu okkar þá er Beijing smá langt frá því sem maður er vanur.....Bæði er það fólksfjöldinn og hitinn en þá aðalega samt að maður nær ekki fullkomnlega að tjá sig og fólk skilur mann ekki alltaf......
Ætla ég að lýsa einum þannig degi fyrir ykkur svo þið fáið smjörþefinn af mínu hate-love sambandi við kína...
Á dögum sem maður er að kafna úr hita og labbar um mega sega sveittur og fólk er búið að bömpa inní mann fram og til baka í marga klukkutíma og maður er loks kominn á staðinn sem tók ár að finna og svo þarf maður virkilega að tjá sig og þá skilur kínverjinn mann ekki og byrjar að öskra á mann eins og lítinn krakka....fær maður svona nettann pirring en þá til að toppa þetta allt eftir að hafa ferðast í 3 tíma í troðfullri lest til að ná í launin þá kemur upp eitthvað rosa problem og þau taka af manni allskonar greiðslur sem eru ekki einu sinni raunhæfar greiðslur sem þau kalla sektir og sem eru ekki í samningnum en maður getur ekkert gert nema að reyna að tala þá til og fá þennann pening til baka sem gengur oftast ekki....en þeir reyna allt til að svindla á manni þannig að það er ekki auðvellt að díla við þá þegar maður er erlendur vinnurmaður hérna í beijing...og eftir svona skemmtileg heit þarf maður að troða sér rennandi blautur af svita aftur í lestina í 3 tíma með þessum bömpandi kínverjum ...þá fæ ég smá svona hate samband við kína!!
en svo kemur á móti lítið krúttað kína barn og brosir fram í mann með tillann útur buxunum og gamallt fólk í garðinum hjá manni að spila og dansa við kínverska tónlist þá fæ ég love sambandið á ný.....
En núna þegar ég er búin að fá að grenja smá þá ætla ég að koma með nýtt blogg á næstu dögum um þessa æðislegu ferð sem ég var að koma úr.....só later folks :)