Sunday, March 7, 2010

Smá gamallt þar sem að bloggið mitt er búið að vera lokað í smá tíma....

Áður en ég kom hingað út þá var Kina svo fjarri og allt hérna var svo merkilegt og stórt í mínum huga ég eyddi mörgum kvöldstundum í að liggja andvaka og hafa áhyggjur af því hvernig ég gæti þetta. Hausinn á mér var alltaf á trilljón “á ég að taka sæng, verður þvottavel, get ég farið í búðina og skilið eitthvað, get ég tjáð mig við fólkið, hvernig ætli maturinn sé, hvernig er að pissa í holu ætli ég geti það, hvernig er að borða ekki með hníf og gaffli, að kasta ekki klósettpappír í klósettið, eru pöddur, ætli ég þroskist, breytist”!!!!

Ég hafði einnig miklar áhyggjur hvað ég ætti að gera þegar ég var lent á flugvellinum, hvernig ég ætti að fara að því að læra táknin og mest af öllu hvernig ég ætti að fara að því að vera svona langt frá fjölskyldu minni og vinum…. Ég grét einnig mikið þegar ég kvaddi vini mína og fjölskyldu og minnir ég hafi grátið mest alla leiðina á flugvöllinn og þangað til ég steig í vélina......

Núna þegar ég er komin hingað og búin að vera hérna í 3 mánuði finnst mér ekkert eðlilegra en að pissa í holu og kasta klósettpappírnum í ruslafötu og allir þessir hlutir sem voru svo stórir og miklir fyrir mér áður en ég kom eru orðnir svo litlir og eðlilegir… ég hef ekkert farið að gráta úr söknuði ….. og mér lýður ekki eins og ég sé hinum megin á hnettinum........en ég er það víst ég er í Kína!!! “Ég er í kina” þessi setning geisast nokkuð oft um hugann minn því að það er allt miklu auðveldara en ég var búin að gera mér hug um.


Það rann upp fyrir mér um daginn afhverju kínverjar eru svona lélegir í ensku. Ég var inní kennslustofu uppi á töflu að kenna krökkunum past tense og present tense þegar ég leit yfir bekkinn og sá 30 litla svartkolla hlusta á mig með öllum hug. Ég fekk smá svona sting í hjartað þar sem að Enska er ekki mitt móðurmál og ég er ekki með neina reynslu í að kenna og hvað þá einhverja háskólagráðu sem leyfir mér að kenna. Og flest allir sem eru að kenna hérna ensku eru á sama stigi og ég.....eða þar að segja ekki frá Usa eða með kennararéttindi.

En þetta er víst voða kínverskt þeir gera hvað sem er til að losna við að gera vinnusamninga við fólk og vilja helst borga þeim bakdyramegin.

Svo er ég einnig komin með aðra vinnu ég er að þýða gsm síma yfir á íslensku…þannig næst þegar þið kaupið ykkur síma og farið í “innhólf eða tengiliði” þá megiði hugsa til mín 

Ég var að koma heim núna við vorum að skoða Lama Temple sem er Budda Temple hérna í kína. Þegar við vorum að labba að því frá lestarstöðinni voru ekkert nema götu salar að selja reykelsi á 40 kr. pakkninguna. Það var ekki nema svona 5 fet á milli götusala og hver og einn var með troðinn bás af reykelsum í mismunandi stærðum og gerðum ég hugsaði með mér “´váá hvað hvert heimili þarf að brenna mörg reykelsi á dag svo að götusalarnir fari ekki á hausinn”.

En svo þegar við vorum komin inn í Tempel-ið þá sáum við að hver einasti kínverju var með troðfullann hagkaups-poka af reykelsum. Inní Tempelinu voru síðan risa Budda styttur útum allt og altari fyrir framan Búddana. Svo kveikti fólk í 3 reykelsum og bað hjá hverjum og einum búdda........Þar sem að við vissum þetta ekki en okkur langaði að prufa að kveikja í reykelsi þá ákváðum við að kaupa reykelsi inní Tempelinu sem kostuðu ekki nema svona 300 sinnum meira en það sem götusalarnir voru að selja.....en það var rosa gaman að biðja með reykelsi og lúta niður á altari fyrir framan risa gull Búdda........

Ég var að kaupa mér skellihnöðru og ég held ég hafi sjaldan fýlað mig jafn mikla gellu ég þeytist um göturnar á bleiku skellinhöðrunni minni og bípa villt og galið á fólkið í umferðinni.....því venjan hérna er að halda inni flautunni...þeir flauta á svona 4 sek, millibili þannig að það er endalaust mikið “bíp” á götunum...... áður en ég keypti mér hjólið var ég búin að segja við sjálfan mig að ég ætlaði aldrei að keyra hérna í Beijing...því að umferðin er svo klikkó.....og ég sé svona 2 hjólaslys á hverjum degi. En svo bara er þetta ekkert mál maður einhvern veginn flýtur bara með fólksfjöldanum og hingað til hef ég ekki klest á neinn eða neitt....Vona bara að það sé ekkert að fara að gerast :D

Já svo eru margir að spurja mig með hana Önnu Lopes hvort að hún sé orðin mega fræg Kínastjarna.....en það var einhver frestun á “klámyndinni” sem hún átti að fara að leika í þannig að þið verðið að drekkja ykkur í tárum ykkar þangað til að næsta boð kemur :D

Jóla hjóla skóla jól

Jólin í Beijing eru búin að vera smá skrýtin….engin venjuleg jól því að kínverjar halda ekki upp á jólin. En Anna jóla og dabba jóla létu kínverjana ekki stoppa sig og við héldum afbragðs jól. Við borðuðum 10 saman á aðfangadag fólk allstaðar að sem var rosa gaman. Við pöntuðum risa stóran kalkún og gerðum svo meðlætið sjálf sem var hreinn og beinn unaður. Hver og einn keyti eina gjöf og svo var sett númer á pakkana og maður dróg einn pakka….þannig að allir fengu einn pakka  víííí

Við ömmurnar vorum bara rólegar á gamlárs……..þetta er í fyrsta skipti sem ég er ekki vakandi kl. 12 á gamlárskvöld…… en eins og ég sagði áðan þá eru nóttulega ekki jól hérna því að nýja árið í kina er ekki fyrr en í febrúar. Ég er í prófum núna þannig ég var bara heima að læra á gamlárs…..og Anna fekk flensu og er byrjuð að “græðast” við sofan

En jæja ég og Anna erum að fara út að skoða hvolpa 

One Big Kína Love