Monday, November 16, 2009

Nǐhǎo!

Hmm hmmm ég sagðist nú ætla að vera dugleg að blogga í síðustu færslu en það hefur ekki mikið gerst hjá mér...en ég ætla að bæta ykkur það upp núna og koma með BA ritgerð!!

Jæja núna erum við búnar að vera í Kína í 2 mánuði…og er kínverskan alveg orðin ágæt eða “ma ma hú hú” eins og maður segir það á kínversku. Við höfum ekki enn náð að afreka mikið túrista thing en það fer að koma, þar sem við erum svo heppnar að búa með besta “gæd” í heimi......

Anna greyið hefur ekki náð að skoða neitt eins og er... En ég er búin að skoða Ólympiu leikvanginn sem er ekkert smá fallegur..... þegar maður er kominn inn á svæðið er eins og maður sé kominn inní kínverska bíómynd...það eru menn útum allt að taka myndir og selja þær....rosalega flottar myndasýningar af Ólympiu-leikjunum og allskonar uppákomur, fólk að dansa í búningum og syngja… krakkar að sýna listir sýnar á línuskautum...eldri menn að syngja og dansa og fólk klædd sem drekar að dansa í halarófu...

Svo sá ég Torg hins himneska friðar en “gædinn” minn er búinn að fara þangað svo oft þannig að við stóðum hinum megin við götuna og svo benti hann á Torgið og sagði “þetta er Torg hins himneska friðar, mjög fallegt, núna kanntu að komast hingað” þannig ég á eftir að fara þangað með Önnu seinna.

Síðan fór ég á silkimarkaðinn sem að er risa stór markaður með öllu sem hægt er að hugsa sér.....þegar ég kom þangað inn streymdi á móti mér fólk með svarta ruslapoka fulla af dóti... það er hægt að prútta allt þarna niður í ekki neitt!! En þar sem ég og Davíð vorum bara að leita af halloween búningum löbbuðum við út með eina hárkollu og eina pípu.... en það kom sér af góðum notum því að við rústuðum búningakeppninni!!

Við sóttum báðar um vinnu og síminn hennar Önnu stoppaði ekki í svona 3 vikur og ég fekk ekki EITT símtal.....líklegast að ég hafi verið of mikil ógn þar sem ég er of sæt fyrir lífið!! Nei nei ég held að það hafi verið nafnið mitt...en um leið og ég skipti um nafn og breytti því í Mia þá hef ég aldrei verið jafn vinsæl.....

Við fengum báðar demo viðtal......í umsókninni þóttumst við báðar vera frá USA og hafa reynslu í að kenna þannig að við þurftum að vera mega pró með amersískan hreim.......það var ein kínversk kona sem tók viðtalið og við áttum að sýna hvernig kennsluaðferðir við notuðum og ímynda okkur að við værum að kenna heilum bekk.....og hún sat þarna ein voða sæt kínakona og lék 30 litla krakka.....var klappandi og spurjandi eins og 7 ára krakki...

Viðtölin fóru vel og Anna fekk fulla vinnu en ég er bara afleysinga dama...... þegar ég labbaði inn í skólann í fyrsta skipti stoppuðu 100 litlir kínverskir krakka og hneigðu sig og sögðu „hello teacher“ svo þegar ég var komin inn í stofuna sátu 30 litlir krakkar og störðu á mig. Ég fekk smá svona „obb obb hvað er ég búin að koma mér í“ en um leið og ég opnaði munninn var bara eins og ég hafi ekki gert annað í lífinu....

Það er búið að snjóa núna í Beijing í viku og hefur ekki verið svona mikill snjór í mörg ár......og það merkilegasta er að kínverjarnir bjuggu til snjóinn, þeir sprenjga skýin með einhverjum bylgjum eða „chemical” efnum. Þeir ætluðu að búa til rigningu en þar sem að það er kominn vetur þá kom flóð af snjó.

En jæja ég ætla að segja þetta gott í bili....og kem með nýtt gossip eftir smá :D
Ps. Við getum ekki svarað þarna í comment bara svo þið haldið ekki að við séum að hunsa þessa tugi manns sem kommenta á síðuna okkar :D

Sjáumst!
Eða 再見 (Zaijian)