Monday, August 17, 2009

Check inn, check out....check inn!!

Eftir að hafa checkað okkur útaf hótelinu og beðið niður í lobbýi í FIMM klukkutíma tókum við taxa á flugvöllinn. Þegar við vorum komnar fyrir utan Gate 3 þá urðum við svo spenntar að við byrjuðum að haga okkur eins og lítil börn að taka sjálfsmyndir af okkur með fyndnu fólki í bakgrunni. Svo fórum við inn á flugvöllinn og eftir smá leit fundum við röðina að Air China. Þegar við vorum búnar að bíða þar í svona hálftíma flissandi og vitandi ekki allveg hvernig við ættum að haga okkur útaf spenning þá kallar dökkhærður eldri maður sem by the way var ekki búin að brosa allann tíma sem við vorum þarna "next plíís" ég og anna förum liggur við dansandi til hans. Við hentum öllum farangrinum á pallinn og hann var búin að vigta hann allann og tjekka okkur inn þegar hann biður um að sjá skjölin frá kína!!!

Eftir langa leit þá grófum við upp alla pappíra þá segir dökkhærði eldri maðurinn, sem ekki var búinn að brosa einu sinni, við okkur: YOU ARE NOT GOING ON BOARD!!

Við byrjum báðar að svitna og svitna og hvítnuðum báðar þó nokkuð í framan. Okkur brá svo mikið að við rétt náðum að stama út úr okkur á ensku "what" ..... og þá útskýrir hann fyrir okkur að við þurfum tvo stimpla og við vorum bara með einn!!

Eldri dökkhærði maðurinn kallaði á yfirmanninn sinn hr. Wong. Eftir að hafa staðið í svitapolli þarna í nokkrar mínútur kom herra Wong og sagði okkur að við þyrftum að fara niður í sendiráðið og fá þennann stimpil og koma aftur á morgun og vonandi fengum við flug....

Þannig flissið breyttist fljótt í vonsvik og tókum við töskurnar okkar og fórum aftur á hótelið sem við höfðum verið á á undan og tjekkuðum okkur inn aftur. Sem betur fer áttu þeir laust herbergi en það var samt aðeins dýrara en það sem við vorum í á undan. En auðvitað tókum við það því það var ekkert annað sem við gátum gert.

Nóttin var frekar erfið þar sem við vorum andvaka og stressaðar að þetta myndi ekki ganga upp hjá okkur. Eftir að hafa sofið í aðeins 3 tíma vöknuðum við og tókum lestina niður í sendiráð sem tók okkur einn og hálfann tíma....þar tók á móti okkur kona sem var ekkert svo vinaleg og sagði við okkur að það væri engin leið að fá "visa" í landið á einum degi...

Þá langaði okkur að fara að gráta og fórum út að leita að tíkalla síma og hringdum í Hr. Gou í íslenska sendiráðinu. Hann sagði við okkur að tala við superviserinn þarna og þetta ætti ekkert að vera neitt mál.... þannig að við löbbuðum aftur í sendiráðið og töluðum við konuna sem var orðin minna vinalegri en í fyrra skiptið. Hún ætlaði ekki að leyfa okkur að tala við yfirmanninn en gaf okkur eitthvað númer... við biðum þarna í nokkra tíma og eina sem við fengum var að fylla út umsókn og sækja visað eftir 3 daga...!!! EF VIÐ FÁUM STIMPIL

Eftir þessar slæmu fréttir fórum við á skrifstofu Air China og þá tók á móti okkur svaka krúttleg kínversk kona. Við þurftum ekki að bíða neitt svaka lengi og eftir smá stund sagðist hún ætla að reyna gera allt í sínu valdi til að hjálpa okkur þannig að við þyrftum ekki að borga annann flugmiða.

Þannig að núna sitjum við uppá herbergi, ekki nema þriðja herbergið okkar á þessu hóteli, og erum að bíða eftir þessum blessaða miðvikudegi......

Saturday, August 15, 2009

London Baby....

Eftir að hafa grenjað alla leiðinni uppá Keflavíkurflugvöll var ferðinni heitið til London, við pöntuðum ódýrasta hótelið sem við fundum á netinu og voru væntingarnar ekki miklar. En svo þegar að taxinn var kominn á leiðarenda setti hann okkur út hjá geggjuðu hóteli með mega flottum veitingarstað og allskonar skemmtilegheitum.......

Við erum á Hóteli rétt hjá flugvellinum og tekur það svona klukkara með lest og 30 mín. í rútu að komast á Oxford street, en auðvitað fórum við þangað fyrsta daginn og vááá hvað það er mikið af fólk og MIKIÐ AF FLOTTUM BÚÐUM...en við erum bara búnar að sannfæra okkur um að þessi fólksfjöldi sé undirbúningur fyrir það sem við eigum eftir að upplifa í Kína...

Við erum ekki vanar svona miklu fólki og vorum frekar motional fyrsta daginn okkar þannig að það leið næstum yfir Önnu og við skiptumst á að tárast útaf smáhlutum..... En þá fengum við okkur bara bjór og þá lagaðist þetta allt saman :D

Við tókum taxa á svona hjóli og fórum á mega flottan Marakóskan stað og borðuðum framandi mat og sátum á golfinu á svona pullum....og kynntumst frábæru fólki sem settist hliðana á okkur og sagði "FOKK" í öðru hverju orði.....

Við fljúgum á morgun til Kína og verðum lentar á mánó í Beijing, við erum rosa spenntar og smá hvíðnar en thank God að Davíð ætlar að sækja okkur á flugvöllinn.....

Anna hlunkur kom hérna inn í herbergið og var ekki sátt við að fá ekki að vera með í þessari bloggfærslu....hún keypti allt sem að sjálfsalinn hafði upp á að bjóða þannig núna erum við að fara að borða eins og sv** og horfa á 120 stöðvar sem við erum með hérna á hótelherberginu..

þangað til næst biðjum við að heilsa London Style LUV frá okkur

Wednesday, August 12, 2009

Ferðalagið byrjar hér.......

Við systur erum að fara flytja til Kína á morgun og er mikill spenningur í bland við stress kominn í okkur..... Þar sem að Facebook er blokkað í kína munum við blogga um kínverska ævintýrið okkar hér :D

Þannig spennið sætisólarnar, setjið upp stólbökin og njótið ferðarinnar.....

over and out Anna og Dabba